Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Ferðaskrifstofuleyfi Ferðadraums ehf. (áður Trans Atlantic ehf.) er fellt úr gildi

Дата публикации: 04-06-2026 13:56:00

Ferðamálastofa hefur fellt niður ferðaskrifstofuleyfi félagsins Ferðadraumur ehf., áður Trans Atlantic ehf., kt. 411223-0350, með skráð leyfi nr. 2006-072. Leyfi félagsins er fellt niður frá og með 4. júní 2026 þar sem félagið uppfyllir ekki skilyrði laga um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun nr. 95/2018 og reglugerðar um Ferðatryggingasjóð nr. 812/2021 með síðari breytingum.

Основное содержимое страницы с новостью.

Ferðamálastofa hefur fellt niður ferðaskrifstofuleyfi félagsins Ferðadraumur ehf., áður Trans Atlantic ehf., kt. 670904-2370, með skráð leyfi nr. 2006-072. Leyfi félagsins er fellt niður frá og með 4. júní 2026 þar sem félagið uppfyllir ekki skilyrði laga um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun nr. 95/2018 og reglugerðar um Ferðatryggingasjóð nr. 812/2021 með síðari breytingum.

Félagið hefur því ekki lengur heimild til að setja saman, bjóða fram eða selja pakkaferðir eða að milligangast sölu samtengdrar ferðatilhögunar í atvinnuskyni.

Ferðatryggingasjóður endurgreiðir ferðamanni þær greiðslur sem hann hefur innt af hendi vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar sem ekki er framkvæmd í samræmi við samning og annast heimflutning ferðamanns sé farþegaflutningur hluti pakkaferðar, komi til ógjaldfærni eða gjaldþrots seljanda eða ef leyfi hans er fellt niður af hálfu Ferðamálastofu með heimild í 27. gr. laga nr. 95/2018. Greiðsluskylda er til staðar hvort sem endanlegur samningur um pakkaferð hefur komist á eða ekki, enda sé sýnt fram á greiðslu með fullnægjandi hætti.

Frestur til að senda kröfu í Ferðatryggingasjóð er til og með 5. ágúst 2026. Krafa þarf að berast innan kröfulýsingarfrests. Kröfur sem berast eftir þann tíma eru ekki teknar til greina. Kröfur eru sendar í gegnum vefgátt á island.is.

Með kröfulýsingu skulu fylgja fullnægjandi gögn til sönnunar um kröfuna, svo sem lýsingu á ferð, kvittanir fyrir greiðslu eða millifærslu.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Þrjú ferðaskrifstofuleyfi felld niður – Lýst eftir kröfum í Ferðatryggingasjóð09.0220-07-2026
2Ferðaskrifstofuleyfi Hispana Tours ehf. er fellt úr gildi0510-04-2026
3Íslandshótel hljóta hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu 20265724-04-2026
4Ársskýrsla Hæfniseturs Ferðaþjónustunnar 2025 er komin út0502-06-2026
5Náttúran dregur að sem fyrr en uppfyllir Íslandsferðin væntingar? - Samantekt úr landamærakönnun 20250512-05-2026
6Ferðaþjónusta í Evrópu stendur sterk í byrjun árs 2026 þrátt fyrir óvissu í heimsmálunum5707-05-2026
7Aukum öryggi ferðamanna - Kynningarfundur0509-06-2026
8Almyrkvinn 12. ágúst - Upptaka frá kynningarfundi fyrir ferðaþjónustuaðila0515-04-2026
9Almyrkvinn 12. ágúst - Hagnýtar upplýsingar og leiðbeiningar fyrir ferðaþjónustuaðila og gesti0726-05-2026
10Atvinnuvegaráðherra úthlutar til 18 verkefna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða0530-04-2026

Классификация: Информация. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 5. Источник: www.ferdamalastofa.is.