Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Fagráð um öryggismál á Sólheimajökli tekið til starfa

Дата публикации: 18-09-2026 14:51:00

Fagráð ferðaþjónustufyrirtækja um öryggismál á Sólheimajökli hefur formlega tekið til starfa. Ráðið er samstarfsvettvangur fyrirtækja sem starfa á Sólheimajökli og hefur það að markmiði að stuðla að auknu öryggi ferðamanna, efla upplýsingamiðlun og samvinnu fyrirtækja á svæðinu.

Основное содержимое страницы с новостью.

Sólheimajökull. Mynd: Markaðsstofa Suðurlands - www.south.is

Sólheimajökull. Mynd: Markaðsstofa Suðurlands - www.south.is

Fagráð ferðaþjónustufyrirtækja um öryggismál á Sólheimajökli hefur formlega tekið til starfa. Ráðið er samstarfsvettvangur fyrirtækja sem starfa á Sólheimajökli og hefur það að markmiði að stuðla að auknu öryggi ferðamanna, efla upplýsingamiðlun og samvinnu fyrirtækja á svæðinu.

Stofnun fagráðsins á rætur að rekja til samráðsfundar sem Ferðamálastofa boðaði til í júlí sl. vegna breytinga sem orðið hafa á Sólheimajökli og þeirra áhrifa sem þær kunna að hafa á öryggi og starfsemi á svæðinu. Í kjölfar fundarins lýstu fyrirtæki sem starfa á jöklinum yfir áhuga á að koma á formlegum samstarfsvettvangi um öryggismál.

Ferðamálastofa hefur í framhaldinu aðstoðað fyrirtækin við undirbúning og stofnun fagráðsins. Fyrirtækin sem taka þátt hafa samþykkt starfsreglur ráðsins þar sem meðal annars er kveðið á um hlutverk þess, aðild, upplýsingamiðlun og samstarf um öryggismál.

Á stofnfundi ráðsins var Stephan Mantler, fulltrúi Háfjalls, kjörinn formaður og Francesco Li Vigni frá Arctic Adventures kjörinn varaformaður.

Ferðamálastofa fagnar því að fagráðið hafi tekið til starfa. Með því skapast formlegur vettvangur fyrir fyrirtæki á svæðinu til að miðla upplýsingum, ræða breytingar á aðstæðum og vinna sameiginlega að fyrirbyggjandi öryggismálum. Slíkt samstarf er mikilvægt til að bregðast við síbreytilegum aðstæðum á Sólheimajökli og stuðla að auknu öryggi ferðamanna og starfsfólks á svæðinu.

Fyrir spurningar eða nánari upplýsingar er hægt að senda póst á oryggi@ferdamalastofa.is 

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Ferðamálastofa telur nú gesti Heimskautsgerðisins við Raufarhöfn08.5921-09-2026
2Yfir 200 gönguleiðir á vef Ferðamálastofu07.3311-09-2026
3Frumvarp um náttúru- og innviðagjald lagt fram í Samráðsgátt05.3323-09-2026
4Endurskoðaðar leiðbeiningar og gátlistar vegna öryggisáætlana09.5702-09-2026
5Hættulegar aðstæður á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls09.3125-08-2026
6Atvikavaktin - örnámskeið fyrir ferðaþjónustuaðila09.8718-09-2026
7Ferðamálaþing höfuðborgarsvæðisins 2026 015.2107-09-2026
8Könnun um áhrif lokunar 2G og 3G farsímakerfa á ferðaþjónustu04.8319-08-2026
9314 þúsund brottfarir erlendra ferðamanna í ágúst015.2110-09-2026
10Björn hittade Islands första mygga: ”Folk blev som galna”06.9423-09-2026

Классификация: Пресс-релизы. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 4.87. Источник: www.ferdamalastofa.is.