Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Kynntu Norrænu nemakeppnina og EuroSkills

Дата публикации: 28-09-2026 07:00:00

Nemakeppnin

Основное содержимое страницы с новостью.

Hinrik Örn og Finnur Gauta kynna Norrænu nemakeppnina (forkeppni í október 2026 í MK í Kópavogi og l…

Hinrik Örn og Finnur Gauta kynna Norrænu nemakeppnina (forkeppni í október 2026 í MK í Kópavogi og lokakeppnin í VMA í apríl 2027) og EuroSkills 2027 í Düsseldorf í Þýskalandi.

Í síðustu viku komu í heimsókn á matvælabraut VMA Hinrik Örn Halldórsson matreiðslumaður og Finnur Gauti Vilhelmsson framreiðslumaður og kynntu Norrænu nemakeppnina, sem verður haldin í húsakynnum VMA í apríl á næsta ári, og EuroSkills - Evrópukeppni ungs fagfólks í verk- og starfsnámi — sem oftast er litið til sem Evrópumeistaramótsins í faggreinum. EuroSkills er haldið annað hvert ár og verður næst haldið dagana 22.-26. september 2027 í Düsseldorf í Þýskalandi.

Hinrik Örn er yfirmatreiðslumaður á Lóla restaurant við Tryggvagötu í Reykjavík og Finnur Gauti er veitingastjóri á veitingastaðnum Oto við Hverfisgötu í Reykjavík. Báðir hafa þeir mikla reynslu af þátttöku í bæði Norrænu nemakeppninni og EuroSkills. Þeir kepptu í Norrænu nemakeppninni fyrir Íslands hönd í Osló árið 2023 og sama ár kepptu þeir í EuroSkills í Póllandi. Í aðdraganda Norrænu nemakeppninnar verða þeir þjálfarar íslensku keppendanna.

Framundan er forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina, sem verður haldin laugardaginn 17. október í MK í Kópavogi og fyrir henni standa Klúbbur matreiðslumeistara og Matvís. Þar keppa ungir og efnilegir matreiðslu- og framreiðslunemar um að verða fulltrúar Íslands í Norrænu nemakeppninni 14.-17. apríl 2027 í VMA. Tveir matreiðslunemar verða fulltrúar Íslands og tveir framreiðslunemar (23 ára eða yngri). Við sama tækifæri verða einnig valdir fulltrúar Íslands á EuroSkills 2027 í Düsseldorf. Þar mega keppa bæði ungsveinar og nemar í matreiðslu og framreiðslu.

Á heimasíðu Klúbbs matreiðslumeistara kemur fram að öllum nemum í framreiðslu og matreiðslu sé heimil þátttaka í forkeppninni fyrir Norrænu nemakeppnina en þeir nemar sem geti tekið þátt í lokakeppninni megi ekki vera eldri en 23 ára á keppnisári.

En í hverju felst forkeppnin fyrir Norrænu nemakeppnina? Á heimasíðu Klúbbs matreiðslumeistara er það tíundað:

Matreiðsla
Keppendur í matreiðslu taka skriflegt próf og há verklega keppni þar sem reynir á fagmennsku, skipulag, tæknilega færni, hráefnisþekkingu og sköpunargleði.
Keppendur elda tvo rétti:
Í aðalrétt Mysteri Basket – hráefni aðalréttar verður leynilegt fram að keppni. Það mun reyna á útsjónarsemi, hráefnisþekkingu og faglega færni keppenda við að vinna úr því hráefni sem þeir fá úthlutað.
Í eftirrétt verður hráefnið Valrhona dökkt súkkulaði, fersk kirsuber og Mascarpone ostur frá MS.

Framreiðsla
Keppendur í framreiðslu hefja einnig keppnina á skriflegu prófi áður en þeir takast á við fjölbreytt verkefni þar sem reynir á fagþekkingu, nákvæmni, faglega framkomu og þjónustuhæfni. Verkefni eru m.a. að blanda tvo drykki í Vínstúkunni, sýna færni í eldsteikingu, setja upp kvöldverðarborð fyrir fjóra, para vín við mat, brjóta servíettur á skapandi hátt og umhella víni.

Nú þegar er vitað um fjóra sem hafa verið í námi í matreiðslu og framreiðslu í VMA sem taka þátt í forkeppninni í MK, tveir í framreiðslu og tveir í matreiðslu. Þess er vænst að fleiri eigi eftir að bætast í hópinn af þeim nemum sem hafa lært hér norðan heiða. Hér er hægt að skrá sig.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Ritlistakvöld fyrir ungt fólk á Lyst 7. október017.1425-09-2026
2Ómar Magni er yngsti nýsveinninn í rafvirkjun á Íslandi!06.9426-09-2026
3Sex þreyttu sveinspróf í vélvirkjun05.4324-09-2026
4Kynntu sér margmiðlun í Kilkenny07.1617-09-2026
5Young European scientists compete at Kiel University: Meet the winners of EUCYS 2026016.2526-09-2026
6Ярмарка космических профессий — 2026 Профориентационное мероприятие, посвященное карьерным возможностям ...014.9228-09-2026
7Приглашаем на Молодёжный день XI Всероссийской недели охраны труда017.121-09-2026
8....... 2026 год..... ИНТЕРЕСНО, ЧТО вы БУДЕТЕ ДЕЛАТЬ в КОСМОСЕ ...05.128-09-2026
9Ómetanleg gjöf frá Johan Rönning09.1525-09-2026
10Atvikavaktin - örnámskeið fyrir ferðaþjónustuaðila09.8718-09-2026

Классификация: Партнеры. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 8.88. Источник: www.vma.is.