Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Zontaklúbburinn Þórunn hyrna styrkir nemendasjóð VMA

Дата публикации: 16-05-2026 09:44:00

zonta

Основное содержимое страницы с новостью.

Ásta Fönn Flosadóttir aðstoðarskólameistari VMA veitti styrknum viðtöku úr hendi Huldu Sædísar Bryng…

Ásta Fönn Flosadóttir aðstoðarskólameistari VMA veitti styrknum viðtöku úr hendi Huldu Sædísar Bryngeirsdóttur, formanns verkefna-, þjónustu- og jafnréttisnefndar Zontaklúbbsins Þórunnar hyrnu.

Zontaklúbbur Þórunnar hyrnu hefur ákveðið að styrkja nemendasjóð VMA um 500 þúsund kr. og skal þeirri fjárupphæð varið til að styrkja efnaminni stúlkur/konur til kaupa á námsgögnum á skólaárinu 2026/2027.

Þetta er þriðja árið sem Zontaklúbburinn Þórunn hyrna styrkir nemendasjóð VMA. Fyrri ár hefur styrkupphæðunum verið varið til kaupa á tölvum fyrir efnaminni stúlkur/konur. Á komandi skólaári verður, sem fyrr segir, fjármununum varið til kaupa á námsgögnum.

Zontaklúbburinn Þórunn hyrna er hluti af alþjóðahreyfingu Zontakvenna. Tilgangurinn með starfi Zonta er að styðja við konur og stúlkur og vinna að jafnrétti. Þórunn hyrna kemur að slíkum verkefnum hér á landi, m.a. þessu verkefni í VMA, og alþjóðlegum verkefnum.

Verkmenntaskólinn á Akureyri þakkar Zontakonum fyrir einstakan hlýhug og mikilvægan stuðning við nemendur í VMA.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Hulda Þórey flutti ávarp brautskráningarnema07.2329-05-2026
2Átta pör í starfsmannahópnum í VMA08.420-05-2026
3Tveir starfsmenn sem hafa starfað við VMA frá upphafi hætta störfum07.9729-05-2026
4Íþróttamót nýnema í VMA05.813-05-2026
5Opnað fyrir seinar umsóknir03.2728-05-2026
6Umfjöllun á Rúv um sjálfbæru kennslustofuna í VMA07.6615-05-2026
7Heimsókn menntamálaráðherra Grænlands í VMA010.8111-06-2026
8Viðbrögð Landssamtakanna Þroskahjálpar og Geðhjálpar, ÖBÍ réttindasamtaka og Umhyggju félags langveikra barna vegna umsagnarbeiðna um drög að svörum Íslands við spurningalista (List of Issues) sérfræðinefndar SÞ um réttindi fatlaðs fólks0523-06-2026
9Rannveig Guðmundsdóttir flutti ávarp fyrir hönd 40 ára brautskráningarnema010.4129-05-2026
10Valfrjálsa bókunin fullgild0509-06-2026

Классификация: Международные. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 9.11. Источник: www.vma.is.