Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Atvikavaktin opnuð – Eflir öryggi í íslenskri ferðaþjónustu

Дата публикации: 16-06-2026 11:52:00

 
Í dag var Atvikavaktinni ýtti úr vör, nýju skráningarformi sem heldur utan um slys, óhöpp og atvik í ferðaþjónustu á einfaldan og samræmdan hátt. Markmiðið með Atvikavaktinni er að efla öryggi, gæði og fagmennsku í íslenskri ferðaþjónustu.
&...

Основное содержимое страницы с новостью.

Pallborðsumræður við kynningu á Atvikavaktinni í dag. Talið frá vinstri: Ívar Finnbogason, Félag fja…

Pallborðsumræður við kynningu á Atvikavaktinni í dag. Talið frá vinstri: Ívar Finnbogason, Félag fjallaleiðsögumanna; Svavar Ólafur Pétursson, Kópavogsbær; Aníta Ósk Ágústsdóttir, Vísir hf.; Haukur Ingi Einarsson, Glacier Adventures; Höskuldur Elefsen, Icelandia og Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri.

Í dag var Atvikavaktinni ýtti úr vör, nýju skráningarformi sem heldur utan um slys, óhöpp og atvik í ferðaþjónustu á einfaldan og samræmdan hátt. Markmiðið með Atvikavaktinni er að efla öryggi, gæði og fagmennsku í íslenskri ferðaþjónustu.

Spara tíma, bæta yfirsýn og styðja við markvisst öryggisstarf

Atvikavaktin er hönnuð með þarfir ferðaþjónustufyrirtækja í huga til að spara tíma, bæta yfirsýn og styðja við markvisst öryggisstarf. Fyrirtæki annast sjálf skráningu í kerfið, fá með því glögga yfirsýn yfir stöðu öryggismála hjá sér og geta brugðist við varhugaverðri þróun áður en hún leiðir til slysa. Hvert fyrirtæki hefur aðgang að sínum eigin gögnum en þau eru ekki aðgengileg öðrum.

Hægt að bregðast við áður en hættur þróast í slys

Atvikavaktin byggir á einfaldri hugmynd – að læra af reynslunni. Sambærilegt verklag hefur verið tekið upp í öðrum atvinnugreinum með góðum árangri. Með samræmdri skráningu atvika skapast betri yfirsýn yfir áhættuþætti, tækifæri til að greina mynstur og sterkari grunnur fyrir forvarnir og umbætur. Reynslan sýnir að flest alvarleg slys eiga sér undanfara. Með skráningu allra atvika, jafnvel þótt enginn skaði hljótist af, er þannig hægt að bregðast við áður en hættur þróast í slys. Kerfinu er ekki ætlað að finna sökudólga heldur að efla lærdóm, samvinnu og leiða fram stöðugar umbætur.

Atvikavaktin verður notendum að kostnaðarlausu og styður fyrirtæki við að halda utan um eigin atvikaskráningu með einföldum og faglegum hætti.

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra:
„Atvikavaktin er stórt framfaraskref fyrir íslenska ferðaþjónustu. Með henni leggjum við traustari grundvöll að markvissri gagnasöfnun um slys og atvik sem mun nýtast til að efla öryggi, styrkja forvarnir og bæta ákvarðanatöku og stefnumótun til framtíðar.“
Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri:
„Þótt Atvikavaktinni sé fyrst og fremst komið á fót til að aðstoða fyrirtækin í sinni starfsemi, þá er ávinningurinn einnig víðtækari. Þegar ferðaþjónustan skráir atvik á sama hátt í miðlægan grunn, verður til heildaryfirsýn yfir atvik á landinu öllu, sem okkur hefur sárlega vantað. Þessi gögn verða ekki með neinum hætti persónugreinanleg né tengd einstökum fyrirtækjum en nýtast til að varpa ljósi á þróun slysa og óhappa á landsvísu. Þannig verða þau mikilvægt innlegg við að skipuleggja þær nauðsynlegu aðgerðir sem grípa þarf til.“
Gísli Níls Einarsson, framkvæmdastjóri Áhættustjórnunar ehf.
„Það er ánægjulegt að sjá Atvikavaktina verða að veruleika í samstarfi við Ferðamálastofu. Hún byggir á áratuga reynslu okkar af atvikaskráningu með ATVIK, við skipulagða söfnun upplýsinga um atvik til að stuðla að auknu forvarnastarfi á meðal fyrirtækja og sveitarfélaga, og saman höfum við þróað lausn sem er sérsniðin að þörfum íslenskrar ferðaþjónustu."
Fjölmargir lagt hönd á plóg

Atvikavaktin var fjármögnuð af atvinnuvegaráðuneytinu en Ferðamálastofa, Áhættustjórnun ehf., fyrirtæki í ferðaþjónustu og fjölmargir aðrir hagaðilar hafa unnið saman að þróun kerfisins síðustu mánuði. Ferðamálastofa mun sjá um rekstur á Atvikavaktinni.

Upptaka frá fundinum


Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri stýrði fundinum.


Hallveig Ólafsdóttir, starfandi skrifstofustjóri á skrifstofu auðlinda í atvinnuvegaráðuneytinu, ávarpaði fundinn.


Dagbjartur Kr. Brynjarsson, sérfræðingur á sviði öryggismála hjá Ferðamálastofu, kynnti kerfið.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Atvikavaktin á 30 mínútum - Örnámskeið fyrir ferðaþjónustuaðila0518-06-2026
2Kynning á Atvikavaktinni - beint streymi0515-06-2026
3Náttúran dregur að sem fyrr en uppfyllir Íslandsferðin væntingar? - Samantekt úr landamærakönnun 20250512-05-2026
4Ársskýrsla Hæfniseturs Ferðaþjónustunnar 2025 er komin út0502-06-2026
5Austurland - Vinnustofa í gerð öryggisáætlana0514-04-2026
6Stöðugleiki á næstunni í ferðaþjónustu samkvæmt spákortunum0221-04-2026
7Atvinnuvegaráðherra úthlutar til 18 verkefna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða0530-04-2026
8Bætt aðgengi - betri upplifun - Upptaka frá kynningu5722-05-2026
9Aukum öryggi ferðamanna - Kynningarfundur0509-06-2026
10Ferðaþjónusta í Evrópu stendur sterk í byrjun árs 2026 þrátt fyrir óvissu í heimsmálunum5707-05-2026

Классификация: Общество. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 5. Информативность: 7. Источник: www.ferdamalastofa.is.