Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Austurland - Vinnustofa í gerð öryggisáætlana

Дата публикации: 14-04-2026 14:26:00

Ferðamálastofa býður upp á hagnýta vinnustofu í gerð öryggisáætlana fyrir ferðaþjónustuaðila. Vinnustofan er ætluð þeim sem starfa við skipulagningu og framkvæmd ferða, hvort sem um er að ræða lítil eða stór fyrirtæki, og vilja styrkja öryggi starfse...

Основное содержимое страницы с новостью.

Ferðamálastofa býður upp á hagnýta vinnustofu í gerð öryggisáætlana fyrir ferðaþjónustuaðila. Vinnustofan er ætluð þeim sem starfa við skipulagningu og framkvæmd ferða, hvort sem um er að ræða lítil eða stór fyrirtæki, og vilja styrkja öryggi starfseminnar í samræmi við gildandi reglur og leiðbeiningar. Vinnustofan er blanda af fyrirlestrum og verkefnavinnu þar sem þátttakendur vinna að eigin öryggisáætlunum með leiðsögn sérfræðinga.

Hagnýtar upplýsingar
  • Dagsetning: 7. maí
  • Staðsetning: Austurbrú, Búðareyri 1, Reyðarfirði
  • Tími: 10:00 – 17:00
  • Lengd: 6 klukkustundir
  • Hámarksfjöldi: 12 þátttakendur (fyrstur kemur, fyrstur fær)
  • Verð: 18.500 kr. á þátttakanda

Fyrir hverja er vinnustofan?

Vinnustofan er sérstaklega ætluð:

  • ferðaþjónustuaðilum sem bera ábyrgð á öryggi ferðamanna
  • stjórnendum og rekstraraðilum
  • leiðsögumönnum og skipuleggjendum ferða
  • þeim sem vinna að gerð eða endurskoðun öryggisáætlana
Námsmarkmið

Markmið vinnustofunnar er að þátttakendur:

  • öðlist skýran skilning á kröfum um öryggisáætlanir í ferðaþjónustu
  • geti greint helstu áhættuþætti í eigin starfsemi
  • tileinki sér aðferðir til að setja fram verklagsreglur og viðbragðsáætlanir
  • skilji mikilvægi öryggismenningar
  • geti unnið áfram að eigin öryggisáætlun
Hæfni sem þátttakendur öðlast

Að lokinni vinnustofu geta þátttakendur:

  • framkvæmt grunnáhættumat fyrir eigin starfsemi
  • sett upp hagnýtar verklagsreglur
  • skilgreint viðbrögð við slysum og neyðartilvikum
  • innleitt eða bætt atvikaskráningu
  • unnið markvisst með leiðbeiningar og eyðublöð Ferðamálastofu
Helstu viðfangsefni
  • Öryggisáætlanir almennt
  • Leiðbeiningar og dæmi
  • Öryggismenning
  • Áhættumat
  • Verklagsreglur
  • Viðbragðsáætlanir
  • Atvikaskráning
  • Samantekt og næstu skref

Vinnustofan fer þannig fram að hún byggir á blandaðri kennslu þar sem stuttir og markvissir fyrirlestrar fléttast saman við verklega verkefnavinnu. Unnið er með raunveruleg dæmi úr ferðaþjónustu til að tryggja hagnýtt gildi, og þátttakendur vinna jafnframt í eigin gögnum og öryggisáætlunum á meðan á vinnustofunni stendur. Þátttakendur fá leiðsögn frá sérfræðingum í öryggismálum sem styðja við ferlið og veita faglega endurgjöf.

Styrkir hjá starfsmenntunarsjóðum

Þátttakendur fá viðurkenningarskjal um þátttöku að lokinni vinnustofu. Námskeiðið uppfyllir almenn skilyrði starfsmenntunarsjóða stéttarfélaga og eru þátttakendur hvattir til að kanna styrkjamöguleika hjá sínu stéttarfélagi.

Hæfniviðmið ef sótt er um styrk

Þekking

  • Uppbygging öryggisáætlana
  • Hlutverk áhættumats, verklagsreglna og viðbragðsáætlana
Færni
  • Greining áhættu og mótvægisaðgerðir
  • Uppsetning öryggisáætlunar fyrir eigin starfsemi
Hæfni
  • Beiting öryggisstjórnunar í daglegu starfi
  • Þátttaka í þróun og umbótum öryggisáætlana
Mikilvægt:

Þátttakendur eru beðnir um að koma með fartölvu eða spjaldtölvu.

Skráning Vegna takmarkaðs fjölda þátttakenda er mikilvægt að skrá sig tímanlega.

Skráning fer fram hér:

Vinnustofa í gerð öryggisáætlana – Fylltu út eyðublað

Af hverju að taka þátt?
  • Uppfylltu kröfur um öryggisáætlanir
  • Auktu fagmennsku og öryggi í rekstri
  • Fáðu verkfæri sem nýtast strax í starfi
  • Lærðu af raunverulegum dæmum

Ekki missa af þessu tækifæri til að efla öryggi í þinni starfsemi.
Við hlökkum til að sjá þig á Austurlandi.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Atvinnuvegaráðherra úthlutar til 18 verkefna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða0530-04-2026
2Kynning á Atvikavaktinni - beint streymi0515-06-2026
3Almyrkvinn 12. ágúst - Upptaka frá kynningarfundi fyrir ferðaþjónustuaðila0515-04-2026
4Atvikavaktin opnuð – Eflir öryggi í íslenskri ferðaþjónustu5716-06-2026
5Atvikavaktin á 30 mínútum - Örnámskeið fyrir ferðaþjónustuaðila0518-06-2026
6163 þúsund brottfarir erlendra farþega í maí0510-06-2026
7Stöðugleiki á næstunni í ferðaþjónustu samkvæmt spákortunum0221-04-2026
8Náttúran dregur að sem fyrr en uppfyllir Íslandsferðin væntingar? - Samantekt úr landamærakönnun 20250512-05-2026
9Aukum öryggi ferðamanna - Kynningarfundur0509-06-2026

Классификация: В стране. Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 9. Тональность: 0. Информативность: 5. Источник: www.ferdamalastofa.is.